01.06.2018
Styrkir til yngri íþróttaiðkenda í Hafnarfirði
Í gær fór fram úthlutun íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga ÍBH samkvæmt samningi milli ÍBH, Rio Tinto á Íslandi og Hafnarfjarðarbæjar. Úthlutunin fór fram hér í höfuðstöðvum Rio Tinto á Íslandi. Samningur hefur verið í gildi frá árinu 2001 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto á Íslandi hf. og Hafnarfjaðarbæjar um stuðning við íþróttastarf yngri iðkenda. Nýr samningur var gerður seint á síðasta ári til þriggja ára og er verðmæti samningsins tæplega 60 milljónir. Að þessi sinni var úthlutað 12 milljónum króna eða 60% af framlagi ársins vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum og jafnréttishvata. Eftirtalin félög fá stuðning út frá samningi og umsóknum:
-
Fimleikafélag Hafnarfjarðar
-
Fimleikafélagið Björk
-
Knattspyrnufélagið Haukar
-
Sundfélag Hafnarfjarðar
-
Brettafélag Hafnarfjarðar
-
Badmintonfélag Hafnarfjarðar
-
Golfklúbburinn Keilir
-
Hestamannafélagið Sörli
-
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar
-
Siglingaklúbburinn Þytur
-
Íþróttafélagið Fjörður
-
Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar
Samtals fá þessu félög 11 milljónir króna og skiptist eftir fjölda iðkenda hjá hverju félagi fyrir sig.
Loks hljóta Brettafélag Hafnarfjarðar og Badmintonfélag Hafnarfjarðar 500.000kr. hvort í jafnréttishvataverðlaun.
Á myndinni eru fulltrúar þeirra íþróttafélaga sem hlutu styrk að þessu sinni ásamt Rannveigu Rist, forstjóra Rio Tinto á Íslandi, og Hrafnkeli Marínóssyni, formanni ÍBH.
« til bakaDeila