18.05.2018
ISAL hlýtur viðurkenningu Öldrunarráðs
Öldrunarráð Íslands hefur veitt ISAL sérstaka viðurkenningu í síðustu viku fyrir framúrskarandi stefnu þegar kemur að starfslokum starfsmanna. Í umsögn ráðsins kom fram að ISAL framfylgir stefnunni á ábyrgan hátt en slíkt sé ekki sjálfgefið. Öldrunarráð Íslands er samstarfsvettvangur fjölmargra aðila sem láta sig málefni aldraðra varða, s.s. opinberar stofnanir, sveitarfélög og önnur félög og stofnanir.
Sigurður Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ISAL, tók við viðurkenningunni fyrir hönd ISAL úr hendi Önnu Birnu Jensdóttur formanni Öldrunarráðs Íslands.
« til bakaDeila