02.01.2020
Hildur Guðnadóttir hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin
Hildur Guðnadóttir, tónskáld og sellóleikari, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2019 sem afhent voru á Kjarvalsstöðum í dag. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein milljón króna í verðlaunafé.Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Upphafsmaður þeirra var danski athafnamaðurinn Peter Bröste en ISAL álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá því að Bröste dró sig í hlé árið 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.
Hildur Guðnadóttir er tónskáld og sellóleikari en hefur einnig sungið og starfað sem kórstjóri. Hildur hefur leikið í fjölmörgum hljómsveitum og spannar tónlistin nánast allt svið tónlistar. Hildur lauk námi í Listaháskóla Íslands í tónsmíði og nýmiðlun. Hún fór síðan í framhaldsnám í tónsmíðum við Universität der Künste í Berlín.
Hildur hefur sjálf gefið út fjórar hljómplötur sem allar hlutu allar góðar viðtökur. Þá hefur hún komið að gerð yfir 20 hljómplatna í samstarfi við annað tónlistarfólk. Sem tónskáld hefur Hildur samið tónlist fyrir leikhús, dansverk, sjónvarp og kvikmyndir. Að undanförnu hefur hún einkum einbeitt sér að tónlist fyrir sjónvarp og kvikmyndir og hlotið mikið lof fyrir. Sérstaklega hefur tónlist Hildar í sjónvarpsþáttunum Chernobyl og kvikmyndinni The Joker hlotið mikið lof. Fyrir tónlistina í Chernobyl hlaut Hildur Emmy-verðlaunin og fyrir The Joker er hún tilnefnd til hinna eftirsóttu Golden Globe verðlauna.
Við athöfnina léku Skúli Sveinsson og Ólöf Arnalds en þau hafa verið samstarfsfólk Hildar.
Guðni Franzson, faðir Hildar, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd en Hildur er stödd erlendis vegna tilnefningar til Golden Globe verðlaunanna. Með honum á myndinni eru Vigdís Finnbogadóttir, Guðni Th. Jóhannesson og Sigurður Þór Ásgeirsson.
« til bakaDeila