08.11.2004
Styrkþegar Alcan fá verðlaun í Kína
Tvær íslenskar stúlkur, þær Bryndís Guðmundsdóttir og Anna Sigríður Kristjánsdóttir, fengu á dögunum fyrstu verðlaun á alþjóðlegri sýningu ungra vísindamanna í Shanghai í Kína fyrir verkefni sem þær kalla vetnishúsið.Alcan á Íslandi styrkti stúlkurnar til fararinnar og óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Í verkefninu er lögð fram verkfræðileg tillaga um hús sem nýtir sólarorku, vindorku og heitt vatn úr jörðu. Þessir orkugjafar eru nýttir saman til að framleiða rafmagn sem íbúar hússins nota. Umframorkunni er breytt í vetni sem t.d. má nota á heimilisbílinn. Í verkefninu er lögð sérstök áhersla á að hús af þessari gerð sé hægt að byggja í þriðja heiminum þar sem víða er mikill orkuskortur.
Alls tóku 300 aðilar frá 18 löndum þátt í sýningunni, en hún var haldin í tengslum við fjölmenna alþjóðaráðstefnu verkfræðinga. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Anna Sigríður að verkefnið hefði vakið mikla athygli í Kína og þær Bryndís hefðu verið beðnar að kynna það á ráðstefnunni sem 3.000 verkfræðingar víða að úr heiminum sátu.
« til bakaDeila