18.10.2004
Nýjar höfuðstöðvar
Nýjar höfuðstöðvar Alcan í Straumsvík voru teknar í notkun föstudaginn 15. október þegar starfsmenn af gömlu aðalskrifstofunum gengu fylktu liði yfir í nýja skrifstofubyggingu, sem hlotið hefur nafnið Faðmur. Nafnið vísar til lögunar hússins, en framhlið þess opnast eins og faðmur móti þeim sem ganga að húsinu.Faðmur leysir af hólmi gamalt skrifstofuhús frá árinu 1967, sem orðið var mjög þreytt enda upphaflega hugsað sem bráðabirgðahúsnæði.
Faðmur er 1130 fermetra bygging og hýsir allt almennt skrifstofuhald fyrirtækisins, auk þess sem tæknimenn og ýmsir stjórnendur hafa þar aðstöðu. Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar teiknaði húsið og aðalverktaki var Fjarðarmót. Byggingarframkvæmdir tóku u.þ.b. eitt ár en eftir er lokafraágangur á lóð.
« til bakaDeila