06.09.2004
Dorrit í Straumsvík
Frú Dorrit Moussaieff, forsetafrú, heimsótti Straumsvík í lok ágúst og kynnti sér starfsemi álversins. Hún skoðaði meðal annars athafnasvæði álversins og heilsaði upp á starfsfólk, sem kunni vel að meta heimsóknina.Fjölmiðlar sýndu heimsókninni mikinn áhuga og fylgdu forsetafrúnni hvert spor. Í viðtölum við fjölmiðla lýsti Dorrit yfir mikilli ánægju með heimsóknina og var ánægjulegt að heyra hvernig fyrirtækið og starfsfólkið kom henni fyrir sjónir.
Við þökkum Dorrit fyrir komuna!
« til bakaDeila