20.02.2004
Sumarstörf 2004
Við viljum ráða um 130 manns í sumarvinnu og leitum að duglegu fólki til ýmissa starfa; m.a. í kerskálum, steypuskála, mötuneyti og ræstingum. Um er að ræða störf á tímabilinu 15. maí til 15. september eða eftir nánara samkomulagi.
Í flestar stöður er þess krafist, að umsækjendur hafi aflað sér vinnuvélaréttinda áður en störf hefjast. Umsækjendur þurfa að verða 18 ára eða eldri á árinu. Við leggjum áherslu á hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi og árvekni. Tölvu- og tækniþekking eru kostir en ekki skilyrði.
Mörg starfanna eru unnin á þrískiptum vöktum (8 klst.) þar sem unnar eru 6 vaktir á fimm dögum með 5 daga fríi á milli. Við leitum einnig að sumarliðum til að vinna eftir öðru vinnufyrirkomulagi. Allir nýir starfsmenn fá markvissa þjálfun í upphafi starfstíma.
Umsóknareyðublað geturðu nálgast með því að smella hér en einnig er hægt að sækja það á aðalskrifstofuna okkar í Straumsvík. Umsóknir þarf að senda okkur fyrir 1. mars.
« til bakaDeila