27.10.2003
Hilmar Örn fær Bjartsýnisverðlaunin
Íslensku bjartsýnisverðlaunin voru afhent í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar í dag. Verðlaunahafi ársins er Hilmar Örn Hilmarsson, tónskáld, en verðlaunin hlýtur hann fyrir tónsmíðar og metnaðarfullt starf í þágu tónlistar. Alcan á Íslandi er bakhjarl verðlaunanna, en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands er verndari þeirra og hann afhenti Hilmari Erni verðlaunin.Hilmar Örn hefur vakið mikla athygli víða um heim fyrir tónlist sína á undanförnum árum. Hann var frumkvöðull í notkun tölva við tónlistarsköpun og ruddi brautina fyrir nýjar hugmyndir í upptökustjórn og útsetningum.
Frá árinu 1987 hefur Hilmar Örn samið tónlist fyrir hátt í 30 kvikmyndir, bæði íslenskar og erlendar, og starfað með kvikmyndaleikstjórum á borð við Henning Carlsen (Pan, 1995), Jane Campion (In the Cut, 2003) og Friðrik Þór Friðriksson (Skytturnar, 1987 - Börn Náttúrunnar, 1991 - Bíódagar, 1994 - Á köldum klaka, 1994 - Djöflaeyjan, 1996 - Englar Alheimsins, 2000 og Fálkar, 2002).
Hilmar Örn hefur einnig unnið með ýmsum tónlistarmönnum að metnaðarfullum og frumlegum verkefnum. Má þar nefna Hrafnagaldur Óðins, sem unninn var í samvinnu hljómsveitarinnar Sigurrósar, Steindórs Andersen kvæðamanns og Hilmars Arnar.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin, áður Bjartsýnisverðlaun Bröstes, eru menningarverðlaun sem fyrst voru afhent árið 1981. Þau hafa fyrir löngu áunnið sér virðingu og viðurkenningu enda hafa margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hlotið bjartsýnisverðlaunin. Hilmar Örn er þess fyllilega verðugur að bætast í þann góða hóp.
Meðal þeirra sem áður hafa hlotið bjartsýnisverðlaunin eru Garðar Cortes (1981), Helgi Tómasson (1984), Einar Már Guðmundsson (1988), Sigrún Eðvaldsdóttir (1992), Kristján Jóhannsson (1993), Björk Guðmundsdóttir (1999) og Andri Snær Magnason (2002).
« til bakaDeila