20.06.2002
Matsskýrsla
Umhverfismati vegna hugmynda ISAL um stækkun er nú lokið og matsskýrslan hefur verið send til Skipulagsstofnunar. Almenningi gefst kostur á að gera athugasemdir við skýrsluna og senda Skipulagsstofnun.
Frestur til að senda inn ábendingar við skýrsluna rennur út um mánaðmótin júní - júlí og Skipulagsstofnun mun svo kveða upp sinn úrskurð nærri mánaðamótunum júlí - ágúst. Allir áhugasamir eru hvattir til að skoða matsskýrsluna.
Smelltu hér til að nálgast skýrsluna á pdf-formi.
Athugið að skráin er stór (11 MB) og nokkurn tíma gæti tekið að hlaða henni niður.
Einnig er hægt að fá eintak af skýrslunni eða samantekt um helstu atriði hennar hjá verkfræðistofunni Hönnun, Síðumúla 1, Reykjavík, sem vann skýrsluna.
« til bakaDeila