20.06.2006

Engin slys á fólki þrátt fyrir erfiðar aðstæður - Kerskáli 3 kominn úr rekstri

Öll ker í kerskála 3 eru nú komin úr rekstri, eftir að slökkt var á síðustu kerunum í nótt.  Í gærkvöldi voru 120 af 160 kerum tekin úr rekstri og vonir stóðu til að hægt yrði að bjarga a.m.k. hluta þeirra 40 sem eftir voru.  Sú varð ekki raunin og því liggur öll framleiðsla í kerskála 3 niðri.

Ástæða þessarar miklu truflunar er alvarleg bilun í rafbúnaði, sem olli 9 klukkustunda straumleysi í skálanum á mánudag.  Straumleysið má rekja til bilunar í spennum í aðveitustöð en ekki er ljóst hvað olli þeirri bilun. Hennar varð fyrst vart um kl. 00:20 aðfararnótt mánudags og ekki tókst að koma rafstraumi á skálann fyrr en rúmum níu tímum síðar. Vonir stóðu til að hægt væri að bjarga stórum hluta keranna, en eftir því sem leið á mánudaginn varð ljóst að slíku yrði ekki við komið. Ker og tengdur búnaður voru illa farin eftir straumleysið, auk þess sem aðstæður fyrir starfsfólk voru orðnar erfiðar. 

Tjón vegna þessara atburða er mikið og mun a.m.k. hlaupa á hundruðum milljóna króna. Mestu skiptir þó, að engin slys urðu á starfsfólki sem allt sýndi mikinn dug við erfiðar aðstæður. Það á skilið mikið hrós fyrir samstöðu, yfirvegun og fagmennsku.

Bilunin er mikið áfall fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins, enda hefur tæknilegur rekstur álversins verið mjög traustur mörg undafarin ár. Strax verður hafist handa við viðgerðir á búnaði sem skemmdist.

Rannveig Rist


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar