02.01.2023

Sigríður Soffía Níelsdóttir hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022

Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé.

Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. ISAL álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.

Sigríður Soffía útskrifaðist með BA-gráðu frá samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2009. En hún var við skiptinámi í einum fremsta sirkusskóla Evrópu, Ecole Superior des Arts de Cirque í Brussel. Hún dansaði með Shalala flokki Ernu Ómarsdóttur frá 2009-2014. Sigríður Soffía hefur unnið bæði sem dansari og danshöfundur í fjölmörgum uppfærslum, bæði hérlendis sem erlendis. Hún útskrifaðist með MBA gráðu frá HR 2021 og er með nýsköpunarfyrirtækið Eldblóm. 

Verk hennar Svartar fjaðrir opnaði 29. Listahátíð Reykjavíkur á Stóra sviði Þjóðleikhússins í maí 2015. Svartar fjaðrir hlaut þrjár tilnefningar til Grímunnar; Sproti ársins, Búningahönnuður ársins og Tónlist ársins. 

Sigríður Soffía er einna þekktust fyrir flugeldasýningar sínar á menningarnóttum Reykjavíkur en árið 2013 hlaut hún Menningarverðlaun DV fyrir Eldar sem var fyrsta flugeldaverkið hennar. Í framhaldi var henni boðið að gera opnunarflugeldasýningu La Mercé borgarhátíðar Barcelona þar sem flugeldasýningu hennar Northern Nights var skotið upp fyrir 2 miljónir manna frá Barceloneta ströndinni. 

Síðustu ár hefur Sigríður skoðað mismunandi leiðir til að miðla hreyfingu, að semja dans fyrir 3 tonn af flugeldum, sungið eitt aðalhlutverka Red Waters óperu í Frakklandi, dansað á Paris Fashion week, samið dans fyrir alþjóðlegar auglýsingar og unnið til verðlauna fyrir leikstýringu á dansstuttmyndum. Eldblóm - dansverk fyrir flugelda og flóru byrjaði sem dansverk, varð flugeldasýning sem varð að blómainnsetningu sem núna er orðið að drykk - fljótandi danssmíðar í flösku. Nú í mars gefur hún út sína fyrstu ljóðabók og dansverk verður frumsýnt á stóra sviði þjóðleikhússins þann 19.april  "Til hamingju með að vera mannleg" ásamt 6 leikkonum og dönsurum.

Í umsögn dómnefndar segir að segir að Sigríður sé sannur fulltrúi listamanna sem vinna þvert á lönd og viðföng og bera verk hennar vitni um öflugan sköpunarkraft þar sem sífellt er leitað á ný viðmið og ókunnar lendur.

Í dómnefnd Íslensku bjartsýnisverðlaunanna eru Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif Gunnarsdóttir og Rannveig Rist.

 


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar