Samtök álframleiðenda
Álverið í Straumsvík er aðili að Samtökum álframleiðenda. Markmið samtakanna er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og efla upplýsingagjöf og fræðslu um áliðnaðinn.
Viðurkenningar
Við einsetjum okkur að vera í fremstu röð í allri okkar starfsemi og sá metnaður hefur skilað okkur ýmsum viðurkenningum á undanförnum árum sem eru okkur mikil hvatning til frekari umbóta.
Smelltu hér til að sjá viðurkenningarnar
Fréttir
13.10.2023
ISAL og Samtökin ´78 undirrita samstarfsyfirlýsingu
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, og Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um að gera álver ISAL í Straumsvík að vottuðum hinseginvænum vinnustað.Meira
Baráttukveðja í tilefni kvennafrídagsins 24. október
Fríða Ísberg hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2021
Rio Tinto og Carbfix í samstarf
Ari Eldjárn hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2020
Fréttatilkynning
FréttasafnÖryggismál eru stórmál í okkar augum, enda ekkert mikilvægara en að starfsfólk komist heilt frá vinnu. Sterk öryggisvitund hefur fest sig í sessi hjá okkar fólki og árangur þess á undanförnum árum er hreint út sagt frábær.
Við erum eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi með öryggisstjórnun sem stenst hinn alþjóðlega öryggisstaðal ISO 45001.
ISO 45001 staðallinn er kröfulýsing á sviði öryggis- og vinnuumhverfisstjórnunar. Fyrirtæki sem starfa skv. staðlinum þurfa sífellt að vinna að umbótum og eru líklegri en önnur til að ná árangri.
Staðallinn á meðal annars að tryggja, að öryggis- og vinnuumhverfismál séu órjúfanlegur þáttur í mats- og ákvörðunarferli við fjárfestingar, framkvæmdir, rekstur, val á verktökum og kaup á vöru og þjónustu vegna starfseminnar.
Í umhverfismálum setjum við okkur metnaðarfull markmið og höfum náð mjög góðum árangri. Við eigum samleið með þeim sem vilja hag umhverfisins sem mestan og teljum að í víðu samhengi sé ál umhverfisvænn málmur, sérstaklega þar sem endurnýtanlegir orkugjafar eru nýttir til framleiðslunnar.
Á hverju ári gefur ISAL út skýrslu sem snýr að frammistöðu fyrirtækisins á sviði umhverfismála. Skýrslan heitir Grænt bókhald og gefur góða sýn á árangur okkar. Skýrslurnar má finna hér.
ISAL er eitt fárra fyrirtækja á Íslandi sem hefur starfsmann í fullu starfi við að sinna heilsu- og heilbrigðismálum starfsmanna, auk þess sem trúnaðarlæknir fyrirtækisins hefur aðstöðu á svæðinu þangað sem starfsmenn geta leitað. Þessi áhersla endurspeglar stefnu fyrirtækisins í umhverfis-, heilbrigðis og öryggismálum en þá málaflokka teljum við náskylda og mikið samstarf er milli aðila sem sinna þeim.
Í heilbrigðismálum er áhersla lögð á vinnuverndarmál af ýmsum toga og með markvissum hætti er starfsfólk hvatt til að hugsa um heilsuna. Umfangsmikið heilsuátak varð t.d. kveikjan að breyttum lífsstíl hjá mörgum starfsmönnum og viðurkenningar frá opinberum aðilum sýna að árangurinn vekur athygli í samfélaginu. Meðal annars má nefna viðurkenningu frá Vinnueftirliti ríkisins fyrir góðan árangur í vinnuverndarmálum og Fjöreggið sem Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands afhendir fyrir góðan árangur á þessu sviði.