21.06.2006
Tjón vegna kerskála 3 væntanlega bætt að mestu - Framleiðslan um 90% á árinu
Vinna við mat á tjóni og undirbúning viðgerða í kerskála 3 er kominn í fullan gang og ljóst er að hugur er í fólki svo framleiðslan í skálanum geti komist í gang að nýju sem fyrst . Þegar er ljóst, að tjónið er verulegt en væntanlega mun taka nokkurn tíma að leggja heildstætt mat á það. Þó er viðbúið að tjónið verði yfir milljarð króna.
Mikil vinna er framundan, enda ætlum við okkur að lágmarka tjónið sem hlýst af þessum erfiðleikum. en fyrirtækið er vel tryggt og búist er við að tryggingar bæti stærstan hluta tjónsins.
Þrátt fyrir að bilunin sé mikið áfall, er viðbúið að framleiðsla álversins í Straumsvík verði 90% af áætlaðri ársframleiðslu á þessu ári, sem eru að sjálfsögðu góðar fréttir. Í fréttatilkynningu frá móðurfélagi álversins kemur fram, að áætlað framleiðslutap sé aðeins um 1% af framleiðslugetu samsteypunnar á árinu.
Smelltu hér til að sækja mynd innan úr kerskála 3.
« til bakaDeila