26.09.2012
Stórum áfanga lokið í fjárfestingaverkefni ISAL
Stórum áfanga var náð í fjárfestingaverkefni RTA hjá ISAL í september, þegar þeim hluta er snéri að rekstraröryggi álversins var lokið.
Tilgangur þessa hluta verkefnisnins var að tryggja það að rafmagn sé alltaf til reiðu fyrir alla þrjá kerskálana og er þannig komið í veg fyrir framleiðslutap í óvæntum kringumstæðum, líkt og átti sér stað árið 2009 þegar rafmagn fór af kerskála í lengri tíma.
Settir hafa verið upp nýir afriðlaspennar með óvenju fjölbreytilega tengimöguleika, sem tengdir eru við hvern hinna þriggja kerskála álversins. Þetta þýðir að við bilun eða viðhald á rafkerfi aðveitustöðvar eða afriðlastöðva er mögulegt að beina orkunni þangað sem hana vantar og er þannig hægt að koma í veg fyrir framleiðslutap verksmiðjunnar.
Einnig hefur verið komið fyrir tveimur afriðlaspennum til viðbótar, en þeir eru grunndvöllur fyrir þeirri straumhækkun sem verkefnið kallar á. Hækkað verður straum á kerskálum 1 og 2 úr 133 kA í 186 kA og er þannig ISAL gert kleift að auka framleiðslu sína um 40 þúsund tonn á ári, eða um 20%.
Nánar um fjárfestingaverkefni RTA hjá ISAL.
« til bakaDeila