Sp. 6

Er ekki hægt að flytja verksmiðjuna?

Flutningur á verksmiðjunni er ekki raunhæfur möguleiki, enda kostnaður og fyrirhöfn við slíkt líklega meiri en að reisa nýja verksmiðju frá grunni – það þyrfti jú að byggja nýtt undir starfsemina og rífa byggingar o.fl. á núverandi stað með tilheyrandi kostnaði. Þá er ólíklegt að jafn góður staður finndist í nágrenninu, enda þarf að huga að ýmsu þegar álveri er valinn staður, t.d. góðri hafnaraðstöðu og góðu aðgengi að vatni, svo eitthvað sé nefnt.