Styrkir og samstarf
ISAL vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins svo metnaðarfullt starf á ýmsum sviðum geti blómstrað. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum átt í samstarfi við fjölda aðila og styrkt margvísleg og metnaðarfull félög og verkefni. Því viljum við halda áfram og til að skerpa á málaflokknum höfum við stofnað sérstakan sjóð sem hlotið hefur nafnið Samfélagssjóður Rio Tinto á Íslandi.
Nánari upplýsingar um Samfélagssjóð Rio Tinto á Íslandi
Samskiptasvið ISAL tekur á móti öllum auglýsingabeiðnum í gegnum netfangið samskiptasvid[hja]isal[punktur]is.
Samfélagið og við
- Við erum samfélagslega ábyrgt fyrirtæki.
- Við viljum stuðla að félagslegu, efnahagslegu og umhverfislegu sjálfbæri.
- Samfélagssjóður Rio Tinto á Íslandi var stofnaður vorið 2005 og úr honum eru veittir styrkir til ýmissa metnaðarfullra verkefna.
- Við erum hluti af samfélaginu.
- Við viljum vera fyrirmynd annarra.